søndag den 16. september 2012

Það er margt að gerast hjá Heklu Elísu um þessar mundir. Hún byrjaði að skríða fyrir tæpum mánuði síðan og er orðin mjög hraðskreið. Hún er líka farin að príla svo mikið að við þurftum að breyta stillingunni á rimlarúminu hennar svo hún henti sér ekki yfir rimlana. Hún er komin með eina tönn, farin að borða graut og er búin að fara í sund.

Nennir ekki lengur að liggja í vagninum. Vill heldur sitja og vera með útsýni
Matartími. Er farin að smakka graut og grænmetisstöppu.
Kíkti með Nettie á Kastellet.
Margt spennandi þar.
Það fór vel á með Svenna og Heklu.
Fannst rosa gaman í sundi og hamaðist í næstum heilan klukkutíma
..og var alveg búin á því á eftir
Gaman í ruggustólnum
Sjáumst

3 kommentarer:

  1. Æi hvað hún er sæt!

    Og Svenni frændi fullkomin í hlutverkinu

    Greinilega nóg um að vera hjá ykkur, alltaf eitthvað nýtt að ske, svo gaman :)

    Takk fyrir að fá að fylgjast með
    Björt

    SvarSlet
  2. Flott sú stutta. Eg er ekki frá því ad hún sé að herma eftir skakka munninum hans Svenna.

    Gummi

    SvarSlet
  3. Næs! Gaman að fá að sjá myndir!!

    SvarSlet